Landafræði tónlistarinnar
Á þessari vefsíðu er að finna ýmsar upplýsingar um Túnis og túniska tónlist. Námsefnið sem hér er sett fram heitir Landafræði tónlistarinnar og er hugsað fyrir grunnskólanemendur. Markmiðið er að kynna fyrir íslenskum nemendum tónlist sem er þeim framandi og ólík þeirri tónlist sem þeir eru vanir.
Inngangur
Túnis er ekki það land sem kemur fyrst upp í hugann þegar hugsað er til útlanda. Þó má stöku sinnum heyra minnst á Túnis í fréttum og þá helst í tengslum við íþróttir og svo hafa íslenskar ferðaskrifstofur boðið upp á skipulagðar ferðir þangað í gegnum tíðina.
Það eru ekki allir sem vita
að hluti af Star Wars eða Stjörnustríðsmyndunum voru kvikmyndaðar í eyðimörkum Túnis. Fyrir áhugasama
er enn hægt að ferðast þar um og skoða
ummerkin eftir kvikmyndatökurnar. Túnis er hinsvegar land sem
á sér langa menningarlega sögu og býr yfir ýmsu
áhugaverðu sem vert er að kynnast og þá ekki
síst framandi tónlist.
